Ég fór á kaffihús áðan með mömmu minni og Þóreyju ásamt vini mínum sem er enn í maganum á mömmu sinni. Ég var að reyna segja honum hvernig maður á að haga sér á kaffihúsi, fyrst situr maður eins og engill og lætur fólk dást að sér, svo fer maður aðeins að þreifa fyrir sér og reyna ná í allt sem er á borðinu, þar næst fer maður að hjala og að lokum öskra og þá lýkur kaffihúsaferðinni fljótlega. En ég vissi ekki að það var kominn tími á að fara heim. Ég var alveg afskaplega hrifin af vatnsflökunum hennar mömmu og Þóreyjar, þetta var flaska með gulum tappa og ég var svo heppinn að fá að halda á einni og að sjálfsögðu tróð ég tappanum upp í mig, það er svo gott því hann er hrjúfur og nuddar því tannholdið vel því mér er farið að klægja all verulega og svo slefa ég svona 1/2 líter á dag. Mamma veltir því oft fyrir sér hvaðan allt þetta vatn kemur.
Núna fæ ég orðið hrísgraut á hverjum degi, áður en ég tek fyrsta lúrinn minn úti í vagni. Ég er alltaf að verða duglegri og duglegri að borða hann en stundum fer ekkert ofan í maga. En ég er svo lítill ennþá að ég er bara að læra þetta. Ég fékk tvisvar gulrótarmauk en mamma ákvað að bíða aðeins lengur með það handa mér, prófa aftur þegar pabbi fer í sumarfrí.
Mér finnst mjög gott að sofa á nóttinni, en á daginn vil ég bara vaka. Tek reyndar nokkra 45 mínúta lúra, mamma er alltaf að setja mig út í vagn og taka mig inn. Hún nær stundum að láta mig sofa aðeins lengur með því að koma og setja snuðið upp í mig.
29 júlí 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
0 skilaboð on "Kaffihús, o.fl."
Skrifa ummæli