30 október 2009

Stóð upp í fyrsta skipti

0 skilaboð
Í gær var ég heima með pabba mínum og sá dót sem mig langaði að leika mér með uppi á kistunni við sófann og stóð sjálfur upp í fyrsta skipti til að ná dótinu. Ég gerði þetta nokkrum sinnum fyrir pabba og við vorum að vonum báðir mjög ánægðir með mig. Ég sem er ekki orðinn 7 mánaða (þó stutt í það).

14 október 2009

Tvær nýjar myndir undir myndir :)

0 skilaboð

12 október 2009

Stór strákur

0 skilaboð
Á föstudaginn flutti ég yfir í mitt eigið herbergi. Núna sef ég ekki lengur inni hjá mömmu og pabba heldur inni í mínu herbergi. Ég var smá stund að jafna mig fyrsta kvöldið, öskraði og lét öllum illum látum í ca. 20 mínútur. Kvöld númer 2 tók ég 13 mínútur að sofna og á þriðja kvöldi lagðist ég á koddann og steinsofnaði um leið. Ég sef líka miklu betur yfir nóttina í nýja herberginu þar sem ég fæ lágmarks þjónustu frá mömmu og pabba og þarf stundum að bíða eftir henni og sofna þá bara aftur sjálfur.
Svo í gær fékk ég klippingu númer 3 síðan ég fæddist og ég sem er bara 6 mánaða gamall. mamma snoðaði á mér höfuðið en skyldi eftir smá hár efst á kollinum svo ég geti haft smá hanakamb þegar ég vill vera töffari. Ég var rosalega góður á meðan mamma klippti mig enda orðinn vanur látunum í vélinni.
Annars er allt gott að frétta af mér, ég er rosalega duglegur að leika mér á gólfinu og fara úr sitjandi stöðu yfir á magann og draga mig áfram á höndunum og ýta mér áfram með fótunum, ég er samt ekki byrjaður að skríða. Svo er ég rosalega duglegur að borða, elska brauð með smjöri og smurkæfu og át heila brauðsneið í gær þegar amma og afi voru í heimsókn.
Ég elska að fá fólk í heimsókn, þá brosi ég allan hringinn og fæ alla þá athygli sem ég á skilið.

Endilega kvittið í gestabókina mína :)

06 október 2009

6 mánaða skoðun

0 skilaboð
Ég fór í 6 mánaða skoðun í morgun og er orðin tæp 8,4 kg og 70 cm langur. Læknirinn var rosalega ánægður með mig og sagði mig vera flottan og kröftugan strák sem yrði sennilega aðeins of fljótur að fara af stað. Þegar hún sá hvað ég var duglegur að sitja einn og óstuddur og reyndi að setjast sjálfur upp þegar ég lá á bakinu þá heyrðist bara úff...það verður stuð heima hjá þér :) Mamma og pabbi eru náttúrulega að rifna úr stolti af mér og bíða spennt eftir því að ég verði stóri bróðir. Ljósan mælti svo með því að við færum að láta mig í sérherbergi af því ég er farinn að vekja mömmu og pabba óþarflega mikið á nóttinni og þarf núna að venjast því að sofa alla nóttina með lágmarks þjónustu. Ætli það muni ekki bara gerast núna um helgina.
 

Jörundur Þór Hákonarson Copyright 2008 All Rights Reserved Baby Blog Designed by Ipiet | All Image Presented by Tadpole's Notez