10 júlí 2009

Ég velti mér af baki yfir á magann


í morgun í fyrsta skipti hjálparlaust. Þegar ég segi hjálparlaust þá er ég að vísa til þess að í gær gerði ég þetta líka en notaði leikgrindina mína til að tosa og spyrna í, ég þurfti hana svo ekki í morgun. Þegar ég var búinn að velta mér yfir á magann ákvað ég svo að fara aftur yfir á bakið og gerði það eftir að hafa náð góðri stöðu á maganum. Ég var semsagt ekki að nota veltinginn til þess að fara til baka, ég kláraði báðar velturnar í sitthvoru lagi :) Mamma og pabbi eru að rifna úr stolti en finnst þetta heldur snemmt þar sem ég er bara þriggja mánaða. Hvað skyldi ég nú læra að gera næst?

0 skilaboð on "Ég velti mér af baki yfir á magann"

Skrifa ummæli

 

Jörundur Þór Hákonarson Copyright 2008 All Rights Reserved Baby Blog Designed by Ipiet | All Image Presented by Tadpole's Notez