17 nóvember 2009
Útlönd o.fl.
Ég fór í fyrsta skipti til útlanda í byrjun nóvember. Fór með mömmu og pabba að heimsækja vini okkar í Árósum. Það var ekkert smá gaman. Ég lærði líka svo mikið af öllum stóru strákunum sem ég lék mér við á hverjum degi. Ég lærði m.a. að standa upp (var reyndar byrjaður á því áður en ég fór út, en meistraði það þegar ég kom heim), setjast upp frá magastellingu, segja hvað ég er stór og sterkur, klappa svo fyrir sjálfum mér, vinka og þá held ég að það sé upp talið. Svo er ég orðinn svo kaldur núna, ég stend við kistuna (sófaborðið) heima hjá mér og halla mér upp að því og sleppi svo höndum, stundum lyfti ég þeim upp í loft og um leið stend ég nánast óstuddur. Mömmu líst ekkert á þetta og er alltaf að biðja mig um að hægja aðeins á mér, þetta er algjör óþarfi að flýta sér svona þótt ég sé að verða stóri bróðir en mamma er komin 22 vikur með systkinið mitt og við höfum ekki hugmynd um hvort þetta sé systir eða bróðir sem er á leiðinni.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)