08 júlí 2009

Mamma mín á afmæli og ég held hún sé orðin rugluð!


Þessa dagana er ég farinn að sýna aðeins meiri skapsveiflur en ég gerði fyrst. T.d. fer dótið mitt óskaplega mikið í taugarnar á mér ef ég næ ekki að troða því upp í mig, mömmu og pabba finnst það svo fyndið að þau sitja bara og hlæja af mér þegar ég verð rauður í framan úr reiði. Svo eru allir miðar á öllum böngsum rosalega skemmtilegir, ég næ oft góðu taki á þeim og get þar af leiðandi aukið líkurnar á því að ná bangsanum upp í mig. Í gær velti ég mér yfir á hliðina af bakinu, ég er sko löngu byrjaður að velta mér af maga yfir á bak, en hitt er aðeins erfiðara og því er ég ekki alveg búinn að ná tökum á því en það kemur. Á nóttinni ef ég vakna finnst mér voðalega gaman að leika mér að sænginni minni, ég byrja á því að sparka henni af mér, svo tosa ég hana til mín og kuðla henni utan um mig og reyni að borða hana, mamma er þá fljót að laga hana en hún veit ekki að um leið og hún er sofnuð þá geri ég þetta aftur. Svo þegar ég vakna á morgnanna þá þykist ég ekkert vita hvernig mér tókst að flækja mig í sænginni minni. Áðan var ég að leika mér á leikteppinu og mamma kveikti á útvarpinu, geisladisk og byrjaði að syngja og dansa eins og ég veit ekki hvað, hún er víst orðin gömul kellingin og ég held að hún sé að reyna halda sér ungri, en ég var svo hissa að ég hætti að leika mér og horfði bara á mömmu mína með hissa svipnum mínum sem er stútur á varirnar og augun galopinn.

0 skilaboð on "Mamma mín á afmæli og ég held hún sé orðin rugluð!"

Skrifa ummæli

 

Jörundur Þór Hákonarson Copyright 2008 All Rights Reserved Baby Blog Designed by Ipiet | All Image Presented by Tadpole's Notez