Ég heiti Jörundur Þór og er Hákonarson. Mamma mín heitir Hildur Jóna og pabbi minn heitir Hákon Ingi. Ég fæddist 31.mars 2009, mamma og pabbi voru búin að bíða ansi lengi eftir mér en ég er sko margfallt biðarinnar virði. Mamma mín er að búa til þessa heimasíðu í þessum skrifuðu orðum meðan ég sef úti í vagninum mínum. Ég hef í raun ekki hugmynd um að hún sé að þessu en vonandi á ég ennþá þessa síðu þegar ég verð stór strákur og fer sjálfur að blogga. Þetta verður amk ágætis dagbók. Kvittið endilega í gestabókina mína.
Mamma ætlar að nota þetta blogg til þess að leyfa fjölskyldu og vinum að fylgjast með mér vaxa og dafna, sérstaklega þeir sem búa langt í burtu og geta ekki knúsað mig þegar þeim langar til. Svo verð ég vonandi prakkari (er strax byrjaður að æfa mig, er í prakkaraæfingabúðum hjá mömmu og pabba) og þá getur mamma skrifað fullt af skemmtilegum sögum af mér hérna inn. En mamma var í gær að kenna mér að tæta af borðinu sem ég sat við, ég var nú ekki alveg að fatta hvað ég ætti að gera en þetta kemur allt saman.
Vonandi á ég eftir að skemmta ykkur jafn mikið og ég skemmti foreldrum mínum sem elska mig meira en allt annað :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
0 skilaboð on " "
Skrifa ummæli