30 september 2009

Ég á næstum því afmæli í dag

0 skilaboð
en ég er orðinn 1/2 árs gamall. Ég er líka búinn að læra að sitja, lærði það um helgina og núna getur mamma skilið mig eftir sitjandi inni í stofu meðan hún hleypur inn í eldhús :)

19 september 2009

Í kaf

0 skilaboð
Ég fór í kaf í fyrsta skipti í dag í sundi. Fékk að fara í kaf þrisvar sinnum og var ekkert smá duglegur í sundi. Núna er maður líka á fullu að æfa sig í að sitja, tala, skríða og fleiru enda ekki seinna vænna þar sem ég er að fara verða stóri bróðir. Ég get næstum því setið sjálfur, mamma og pabbi þurfa bara rétt að styðja við mig, en ég vil samt miklu frekar standa heldur en sitja. Jæja best að fara að fá mér að borða.

07 september 2009

Nú er maður sko orðinn stór

0 skilaboð
Ég fór í 5 mánaða skoðun, ég er orðinn 68 cm og 7,750 kg og ég er búinn að senda mömmu að heiman, hún er farin að vinna svo ég og pabbi getum brallað eitthvað saman á daginn. En svona til að toppa þetta þá er ég kominn með leið á pelanum og vill helst bara drekka úr venjulegu glasi, mamma og pabbi eru ekki alveg sátt við það og troða því alltaf pelanum upp í mig fyrst en enda oft á því að hella mjólkinni í glas og gefa mér hana þannig. Svo liggja bara smábörn, ungbörn sitja en ég STEND, ég er reyndar ekki byrjaður að standa sjálfur, en ég þoli það ekki þegar mamma og pabbi eru að láta mig liggja eða sitja því ég vil bara standa og bíð spenntur eftir því að geta staðið hjálparlaust.

02 september 2009

5 mánaða gutti

0 skilaboð
Já maður er sko orðinn 5 mánaða gutti. Ég var svo heppinn að hafa ömmu hjá mér alla helgina og rúmlega það. Hún var voðalega góð við mig og ég við hana. Mér finnst svo gaman þegar ömmur mínar og afar koma í heimsókn. Í dag var ég t.d. orðinn mjög þreyttur og pirraður þegar afi Þór kom í heimsókn með ömmu og þá brosti ég bara út að eyrum og gleymdi því alveg að ég væri þreyttur.
Núna finnst mér hundleiðinlegt að liggja á gólfinu, það er svo fúlt að komast hvorki áfram né aftur á bak, ég snýst bara í hringi á maganum og svo inn á milli velti ég mér yfir á bak eða maga.
Ég er líka mikið að æfa raddböndin og fallegu röddina mína. Ég segi t.d. mamamamama, papapapapapa, afaafaafaafaafa, ammammamm, aaahhhhhhhhh (öskra það) og margt fleira.
Ég fór á kaffihús með vinum mínum sem eiga mömmur sem vinna með mömmu á mánudaginn og öskraði svo mikið (ég var sko bara að tala, en mér liggur svolítið hátt rómur eins og pabba og Valla frænda) að ég hræddi eina vinkonu mína svo mikið að hún fór að gráta undan mér, amk tvisvar. Mamma var nú ekki alveg ánægð með þessi læti í mér en getur lítið gert við því þar sem ég er bara 5 mánaða og skil ekkert hvað hún segir.
Pabbi er svo kominn í feðraorlof núna næstu 2 mánuði. Mamma er að fara vinna á mánudaginn og er orðinn voðalega spennt þótt henni langi ekkert til að vera svona lengi í burtu frá mér í einu, en það hlýtur að venjast.
 

Jörundur Þór Hákonarson Copyright 2008 All Rights Reserved Baby Blog Designed by Ipiet | All Image Presented by Tadpole's Notez