20 júlí 2009

Var að koma heim úr sveitinni hjá afa og ömmu


á Fjósum. Þar var mikið dekrað við mig, alltaf einhver tilbúinn að halda á mér sem er ekki slæmt. Ég vorkenni mömmu smá á morgun þegar ég mun að sjálfsögðu biðja um sömu "meðferð" og ég fékk á Fjósum hjá afa og ömmu.
Ég fékk að fara í göngugrind í fyrsta skipti í dag sem ég fékk lánaða hjá Fannari frænda mínum. Mér fannst það ekkert smá mikið sport, svo fórum við í mat til Hólmars vinar míns í kvöld og á meðan fullorðna fólkið borðaði sat ég í hástól við borðið og fylgdist með, fannst það ekki leiðinlegt :)
Ég er búinn að læra aftur að velta mér yfir á bakið og fer því í hringi á gólfinu núna, áðan fór ég svo langt áður en mamma náði að stoppa mig að ég rak höfuðið í borðfótinn á eldhúsborðinu en sem betur fer var höggið ósköp vægt að ég meiddi mig ekkert, brá ekki einu sinni enda orðinn svo stór strákur.
Núna sef ég vær í rúmminu mínu, sofnaði í bílnum á leiðinni heim og sem betur fer voru mamma og pabbi búin að setja mig í náttgallann svo ég gat bara haldið áfram að sofa.

0 skilaboð on "Var að koma heim úr sveitinni hjá afa og ömmu"

Skrifa ummæli

 

Jörundur Þór Hákonarson Copyright 2008 All Rights Reserved Baby Blog Designed by Ipiet | All Image Presented by Tadpole's Notez