Ég fór í fyrsta skipti í dag í húsdýragarðinn með mömmu minni. Ég svaf nú í vagninum mest allan tímann en fékk þó aðeins að koma í fangið á mömmu og skoða dýrin. Ég var voðalega hrifin af selunum, amk starði ég á vatnið sem þeir voru að synda í. Hvort sólin sem skein og endurkastaðist af vatninu hafi verið það sem vakti athygli mína eða selirnir sem hreyfðust í því skiptir ekki höfuð máli, mér fannst þetta amk mjög áhugavert. Mamma er voðalega mikið að leyfa mér að vera vakandi úti þessa dagana enda búið að vera óvenju hlýtt á Íslandi í sumar að okkar mati. Hún fer stundum með mig í göngutúr út á götu og aftur til baka, þá fæ ég að sjá bíla, tré og hús. Um daginn vildi hún endilega að ég kæmi við tré í Laugardalnum en ég var ekki sammála henni og ég vann :)
Ég er líka að ganga í gegnum miklar skapbreytingar, t.d. í gær grét ég svo mikið (þegar ekkert var að mér) að ég fékk ekka í fyrsta skipti. Mamma og pabbi áttu ekki til orð en tókst að hugga mig og þá fór ég að sofa. Ég er mikið að prófa þau þessa dagana, sjá hvernig þau bregðast við og athuga hvað ég kemst langt, en mamma er svo bókstafstrúa varðandi uppeldið á mér að stundum verð ég að gefa undan :) Hún vill t.d. ekki vagga mér í svefn í vagninum, hún vaggar mér til þess að róa mig ef ég öskra mikið en passa sig alltaf á því að stoppa áður en ég sofna og lætur mig sofna sjálfur. Hún las það í bókinni Draumaland að börn læra að sofna sjálf og oft eru það foreldrarnir sem eyðileggja þann hæfileika hjá börnum og enda á því að þurfa að svæfa börnin sín. Hún ætlar að gera allt sem í hennar valdi stendur til að sjá til þess að ég sofni sjálfur það sem eftir er...sjáum til hvernig það gengur hjá henni, mér finnst hún soldið bjartsýn og það finnst öðrum líka.
09 júlí 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 skilaboð on "Húsdýragarðurinn"
Mér finnst þú ekkert of bjartsýn með svefninn, þetta er vel hægt - ég tala af reynslu :-)
Mikið var gaman að hitta þig í Húsdýragarðinum Jörundur Þór. Flotti strákurinn!!!!
Kveðja, Gulla og krakkarnir
Það verður sko gaman að fara með litlu guttana í húsdýragarðinn þegar þeir verða orðnir aðeins stærri, eiga örugglega eftir að gera allt vitlaust!:)
Oh já ég ætla rétt að vona það Guðrún :)
Sömuleiðis Gulla :)
Ella já ekki spurning við förum og gerum allt vitlaust næsta sumar!
Skrifa ummæli