22 júlí 2009
Grautur...
Ég fékk graut í fyrsta skipti í dag, bæði í morgun og aftur í kvöld. Ástæðan fyrir því að ég fékk tvisvar fyrsta daginn er sú að ég kyngdi eiginlega engu af honum í morgun, fannst þetta svo skrítið, en í kvöld kyngdi ég svona ca. 1 munnbita. Mér finnst ég að sjálfsögðu orðinn rosalega stór að vera byrjaður að borða og hlakka til að fá að smakka fleiri tegundir, en þangað til ég verð 4 mánaða fæ ég bara ca. 1 tsk af hrísgraut á dag, svo mun ég líklega fá að smakka gulrætur, banana og kartöflur þegar ég verð 4 mánaða, eða um Verslunarmannahelgina :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
0 skilaboð on "Grautur..."
Skrifa ummæli