29 ágúst 2009

Langamma áttræð og fyrsti í ungbarnasundi

0 skilaboð
Í gærkvöldi fór ég í partý til langömmu en hún varð áttræð í gær. Ég naut mín að sjálfsögðu innan um alla og leyfði hverjum sem vildi að prófa að halda á mér og svo dansaði ég með mömmu við Þorvald Halldórsson sem kom og skemmti í veislunni.
Í morgun vaknaði ég svo snemma og skellti mér í ungbarnasund í fyrsta skipti. Ég lék á alls oddi, sundkennarinn sagði að ég væri bara byrjaður að synda og ég var líka svo duglegur að busla, reyndar eini krakkinn sem buslaði því ég var líka eldri en allir hinir. Síðan þegar ég fór uppúr lauginni þá fór ég bara að gráta, ég vildi bara alls ekki hætta að busla og leika mér. Grét svo aðeins í búningsklefanum og mamma náði varla að græja sig. Síðan kom ég heim og fór beint út í vagn og er búinn að sofa núna í tvo og hálfan tíma sem er met hjá mér síðan ég varð svona stór. Greinilegt að ég tók vel á í sundinu. Mamma og pabbi eru að setja myndir inn í tölvuna og ætla að skella nokkrum hér inn á eftir/á morgun til að leyfa ykkur að sjá hvað ég var duglegur.

21 ágúst 2009

Má ég skipta á honum?

2 skilaboð
Ég hitti Víó vinkonu mína í fyrsta skipti í gær. Ég var líka svona rosalega hrifinn af henni. Þetta var ást við fyrstu sýn. Mikið rosalega þótti mér gott að fá knús frá henni og njóta þess að leyfa henni að knúsa mig og kyssa enda finnst mér fátt eins gott og að fá koss á kinn. Þá lygni ég aftur augunum, vippa upp á nefið og opna munninn með tunguna út. Ég er líka allur í því að sjarmera fólk þessa dagana með fallega brosinu mínu. Ekki verra ef konurnar sem knúsa mig eru brjóstgóðar, það þykir mér ekki leiðinlegt :)
Svo komu amma og afi í heimsókn í dag, ég rétt náði að hitta þau áður en þau fóru, elti afa út í bíl til að segja hæ við hann því ég var sofandi allan tímann úti í vagni á meðan þau biðu eftir því að ég vaknaði. Svo í kvöld mátaði ég jogging gallan sem afi valdi handa mér og hann smellpassaði á mig, ég var svakalega mikill töffari í honum.
Sía frænka kíkti svo á mig, ég sýndi henni hvað ég kann að brosa mikið og svo hló ég af táslunum hennar mömmu en mér finnst þær það fyndnasta í heiminum í dag.
Grétar, Þóra og Hólmar komu svo líka í heimsókn svo það var nóg að gera. Ég og Hólmar ákváðum að bralla eitthvað saman þegar ég er búinn að læra að sitja, en mamma bíður spennt eftir því og er með mig í þjálfunarbúðum á hverjum degi. Ég er nú svolítið langt frá því ennþá enda bara rétt rúmlega 4 mánaða gamall. Ég er hins vegar farinn að vera ansi góður í að mjaka mér fram og tilbaka á maganum, geri svakalega flottar skriðhreyfingar með fótunum og kemst þannig út af leikteppinu og á parketið sem mér finnst mjög spennandi því ég held að ég geti kroppað í alla kvistina, en þeir sitja sem betur fer fastir segir mamma.
Mamma lofar því að setja inn myndir af mér sem fyrst og vídeó um leið og hún lærir það, en hún er svo mikill nörd að hún er ekki búin að læra það.
Á morgun ætla ég svo að fara hvetja pabba í 10 km hlaupi til styrktar Einstökum börnum og ég hlakka mikið til að sjá hann koma í mark. Sjáumst vonandi sem fyrst og munið að kvitta í gestabókina.

17 ágúst 2009

Akureyri og brúðkaup

1 skilaboð
Þá er ég komin heim eftir langt ferðalag. Ég fór með mömmu og pabba til Akureyrar um helgina í brúðkaup hjá Völu og Kára. Ég skemmti mér rosalega vel í veislunni og fór ekki heim fyrr en að ganga ellefu um kvöldið. Mamma var svo mömmusjúk að hún vildi ekki láta stelpuna sem var búið að redda til að passa mig og fór því bara heim með mér. Ég var rosalega góður strákur í veislunni og það heyrðist varla í mér, allir gestirnir sem sátu í kringum okkur voru alltaf að minnast á það hvað ég væri góður og spurðu hvort ég væri alltaf svona góður. Auðvitað er ég alltaf svona góður :) En mér fannst líka rosalega gott að komast heim í gær eftir langan bíltúr frá Akureyri. Ég varð ofsalega kátur þegar ég sá leikteppið mitt og þegar ég fór út í vagn að sofa. Mamma leyfði mér hinsvegar ekki að sofa eins lengi úti í vagni og ég hefði viljað þannig að hún sótti mig og gaf mér að drekka, ég sofnaði svo þegar ég átti að ropa og svaf sitjandi hjá mömmu í nokkrar mínútur og mamma og pabbi skemmtu sér konunglega á meða að taka myndir og vídeó af mér meðan ég hraut :) Ég fór svo að sofa í gær kl. 20:30 og svaf til kl. 7:00 í morgun, fékk mér smá að drekka og svaf aftur til 8, svo var ég að fara út í vagn núna og er steinsofnaður. Maður er bara að bæta upp allt fjörið um helgina :)

11 ágúst 2009

Sund í fyrsta skipti

0 skilaboð
Ég fór í sund áðan með mömmu og pabba í fyrsta skipti á ævinni. Ég var rosalega góður, fannst sérstaklega gaman í sturtunni og að busla í lauginni, var orðinn ansi góður með mig í lokinn og farinn að skvetta svo miklu vatni að það fór allt framan í mig og pabba. Mér fannst vatnið ekkert sérstaklega gott á bragðið en ég lét mig samt hafa það. Svo fannst mér voðalega gaman þegar mamma og pabbi létu mig fara upp og niður, alveg uppúr lauginni og svo hratt niður aftur (þó ekki í kaf). Núna bíð ég spenntur eftir því að fara í ungbarnasund, mamma og pabbi þurfa amk ekki að hafa neinar áhyggjur af því af því ég var svo rosalega góður í dag.

10 ágúst 2009

Alæta

0 skilaboð
Það má eiginlega segja að ég sé alæta, ég er farinn að borða svo margar tegundir af mat og ég er bara nýorðinn 4 mánaða gamall. Ég er búinn að smakka hrísgraut, hrísgraut með banana og ferskjum, banana, perumauk, gulrætur og epli. Mér finnst þetta allt saman rosalega gott. Mamma ætlar svo að gefa mér kartöflur seinna í vikunni sem hún og pabbi eru búin að vera rækta úti í garði og þá hef ég smakkað allar tegundir sem ég má fá skv. mömmu minni þar til ég verð 6 mánaða gamall. Ég fékk að sjúga bæði epli og gulrót um daginn, mér fannst það alveg svakalega gott og gaman að fá eitthvað kallt til að naga. Mamma er að vonast til að ég verði alæta þegar ég verð eldri, að ég verði ekki matvondur og þess vegna ætlar hún að reyna að útbúa sem mest af maukinu sjálf svo það líkist meira því bragði á þeim mat sem ég kem til með að fá þegar ég verð eldri. En hún smakkaði sjálf gulrótarmaukið sem átti að vera 100% gulrætur og það bragðaðist alls ekki eins og gulrætur.

07 ágúst 2009

Fyrsti alvöru hláturinn

1 skilaboð
Ég byrjaði í dag að hlægja fyrir alvöru. Ég hef oft áður skríkt smá en ekki hlegið neitt af viti. Í dag var svo amma á Fjósum að sýna mér tvær skálar, eina gula og aðra appelsínugula og mér fannst þær alveg svakalega fyndnar, svo í kvöld var pabbi að leika við mig "pabbi er týndur" leik með taubleijunni minni og mér fannst það alveg svakalega fyndið líka. Ég er semsagt formlega byrjaður að hlægja. Mamma reyndi líka að fá mig til að hlægja en ég vildi bara fá eitthvað að borða hjá henni, brosti til hennar og reyndi svo að borða á henni kinnina :)

03 ágúst 2009

Þingvellir, Gullfoss, Geysir, Kerið, Hafið Bláa

0 skilaboð
Ég var svo heppin í gær þegar ég vaknaði að það voru komnir tveir Danir í heimsókn til mín með fullt af dóti handa mér. Kat og Allan komu um nóttina frá Danmökru og ætla að vera hjá okkur í heila viku. Við fórum í bíltúr í gær með þeim og sáum Þingvelli, Gullfoss og Geysir og Kerið og enduðum svo að borða á Hafinu Bláa. Mér fannst rosalega gaman þegar mamma leyfði mér að koma upp úr vagninum og sjá Gullfoss og Geysir, ég svaf nú bara á Þingvöllum enda lítið "action" þar, fannst miklu skemmtilegra að heyra lætin í Gullfoss og Geysir og lætin í fólkinu á Geysir þegar Strokkur gaus. Mamma er alltaf að tala um að það eigi að sýna börnum náttúruna og leyfa þeim að finna fyrir henni svo hún lét vatn frá Gullfoss rigna yfir mig :) Ég blotnaði reyndar ekki því þetta var bara smá úði en mér fannst þetta frábært og brosti allan hringinn.
 

Jörundur Þór Hákonarson Copyright 2008 All Rights Reserved Baby Blog Designed by Ipiet | All Image Presented by Tadpole's Notez