Ég var að koma heim frá því að vera í heimsókn hjá ömmu og afa í Hafnarfirðinum. Ég er voðalega hrifin af þeim og geri lítið annað en að vera góður strákur og brosa til þeirra. Valli frændi var líka að leika við mig og ekki fannst mér það leiðinlegt. Ég á örugglega eftir að fá að elta hann þegar ég verð aðeins eldri.
Ég sofnaði svo í bílnum á leiðinni heim og mamma lét mig svo út í vagn þegar við komum heim en ég var ekkert sáttur við það og vildi miklu frekar dást af kartöflugrösunum hennar mömmu og fylgjast með geitungunum og mæju býflugu sveima um. Mamma lagði mig svo aftur og ég sofanði á endanum, en líklega mun ég vakna aftur eftir 45 mínútur því ég sef ekki lengur í einu þessa dagana á daginn. Mamma kvartar ekki því ég sef svo vel á kvöldin og á nóttinni, t.d. í gær fór ég að sofa rétt eftir kl. 20 og vaknaði um hálf átta í morgun. Geri aðrir betur :)
30 júlí 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
0 skilaboð on "Amma og afi"
Skrifa ummæli