26 júlí 2009

Gulrótarmauk


Núna er mamma á fullu að gefa mér eitthvað nýtt að borða, ég fékk í dag að smakka gulrótarmauk í fyrsta skipti. Það var alveg rosalega gott, miklu betra en þessi hrísgrautur sem mamma er búin að vera gefa mér síðustu daga. Ég fékk bara smá gulrótarmauk svona í fyrsta skiptið, hefði alveg getað borðað meira en geri ráð fyrir að fá meira á morgun ef ég verð góður. En af því ég er alltaf svo góður þá hlýt ég að fá það :)
Í gærkvöldi velti ég mér yfir á magann í fyrsta skipti í rúmminu mínu, hingað til hef ég bara gert það á gólfinu. Mömmu og pabba leist nú ekkert á það að ég ætlaði að sofa á maganum, en ég var steinsofandi þegar ég gerði þetta. Pabbi færði mig því aftur yfir á bakið og þannig svaf ég í alla nótt.
Munið að kvitta í gestabókina mína :)

1 skilaboð on "Gulrótarmauk"

Daníel Gunnar Grétarsson on 26 júlí, 2009 20:19 sagði...

Gulrótarmauk er voðalega gott, mér finnst sveskur samt bestar, bæði bara hreint og út í rísgrautinn minn, ég fá sveskjur á hverjum degi. Mér finnst voðalega gott að sofa á hliðinni, það er svo óþægilegt að vakna á maganum, ég fer alltaf að gráta. Mamma og pabbi biðja að heilsa mömmu þinni og pabba
bæbæ

Skrifa ummæli

 

Jörundur Þór Hákonarson Copyright 2008 All Rights Reserved Baby Blog Designed by Ipiet | All Image Presented by Tadpole's Notez