Ég er alveg óstöðvandi þessa dagana, ef mamma setur mig á gólfið á bakið þá sný ég mér eins og skot yfir á magann, en í öllum látunum að læra að snúa mér yfir á magann hef ég gleymt því að snúa mér aftur yfir á bakið eða það heldur mamma amk. Kannski vil ég bara ekki lengur liggja á bakinu. Þar sem ég er stundum svolítið óþolinmóður þá dugar mér ekki að vera á maganum því ég vil byrja að skríða sem fyrst. Ég geri heiðarlega tilraun til þess, fer upp á hnén en gleymi að samhæfa efri og neðri búk og lyfta báðum í einu. En það kemur, ég er bara 15 vikna, þriggja og hálfsmánaða gamall.
Á morgun ætla vinir mínir að koma í heimsókn, hann Sverrir Styrkár, Guðbjörg Elísa og Ebba Katrín ásamt mömmum sínum sem voru/eru allar að vinna með henni. Ég er elstur, svo kemur Ebba Katrín, þar á eftir Sverrir Styrkár og svo Guðbjörg Elísa. Mikið rosalega verður gaman að hitta þau.
16 júlí 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 skilaboð on "Snúningur + hittingur"
Halló Jörundur
Þú ætlar bara að verða eins og ég :) Skil þig alveg rosalega vel, það er voðalega erfitt að muna hvernig maður fer aftur á bakið... tók mig mánuð að muna það aftur :) En núna sit ég einn og óstuddur og leik mér að dótinu mínu, það er rosalega gaman og spennandi.
Mamma biður að heilsa mömmu þinni!
Bæ!!
Skrifa ummæli