18 janúar 2010

Árið 2009 liðið

0 skilaboð
Jæja þá er fyrsta árið mitt liðið og næsta hafið. Á þessu ári verð ég stóri bróðir. Ég veit ekki enn hvað bíður mín en ég er viss um að ég verð alsæll með þetta nýja hlutverk. Ég er búinn að stækka heilmikið síðan ég fæddist. Ég er alveg að detta í 10 kg og orðinn 73 cm. Ég er byrjaður að labba meðfram öllu, tæta allt sem fyrir mér verður og fer upp á allt sem ég kemst upp á, hangi stundum á undarlegustu stöðum og mamma klórar sér bara í hausnum yfir þessu og skilur hvorki upp né niður í þessu hvernig ég kemst þangað sem ég kemst.
 

Jörundur Þór Hákonarson Copyright 2008 All Rights Reserved Baby Blog Designed by Ipiet | All Image Presented by Tadpole's Notez