06 október 2009
6 mánaða skoðun
Ég fór í 6 mánaða skoðun í morgun og er orðin tæp 8,4 kg og 70 cm langur. Læknirinn var rosalega ánægður með mig og sagði mig vera flottan og kröftugan strák sem yrði sennilega aðeins of fljótur að fara af stað. Þegar hún sá hvað ég var duglegur að sitja einn og óstuddur og reyndi að setjast sjálfur upp þegar ég lá á bakinu þá heyrðist bara úff...það verður stuð heima hjá þér :) Mamma og pabbi eru náttúrulega að rifna úr stolti af mér og bíða spennt eftir því að ég verði stóri bróðir. Ljósan mælti svo með því að við færum að láta mig í sérherbergi af því ég er farinn að vekja mömmu og pabba óþarflega mikið á nóttinni og þarf núna að venjast því að sofa alla nóttina með lágmarks þjónustu. Ætli það muni ekki bara gerast núna um helgina.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
0 skilaboð on "6 mánaða skoðun"
Skrifa ummæli