21 ágúst 2009

Má ég skipta á honum?


Ég hitti Víó vinkonu mína í fyrsta skipti í gær. Ég var líka svona rosalega hrifinn af henni. Þetta var ást við fyrstu sýn. Mikið rosalega þótti mér gott að fá knús frá henni og njóta þess að leyfa henni að knúsa mig og kyssa enda finnst mér fátt eins gott og að fá koss á kinn. Þá lygni ég aftur augunum, vippa upp á nefið og opna munninn með tunguna út. Ég er líka allur í því að sjarmera fólk þessa dagana með fallega brosinu mínu. Ekki verra ef konurnar sem knúsa mig eru brjóstgóðar, það þykir mér ekki leiðinlegt :)
Svo komu amma og afi í heimsókn í dag, ég rétt náði að hitta þau áður en þau fóru, elti afa út í bíl til að segja hæ við hann því ég var sofandi allan tímann úti í vagni á meðan þau biðu eftir því að ég vaknaði. Svo í kvöld mátaði ég jogging gallan sem afi valdi handa mér og hann smellpassaði á mig, ég var svakalega mikill töffari í honum.
Sía frænka kíkti svo á mig, ég sýndi henni hvað ég kann að brosa mikið og svo hló ég af táslunum hennar mömmu en mér finnst þær það fyndnasta í heiminum í dag.
Grétar, Þóra og Hólmar komu svo líka í heimsókn svo það var nóg að gera. Ég og Hólmar ákváðum að bralla eitthvað saman þegar ég er búinn að læra að sitja, en mamma bíður spennt eftir því og er með mig í þjálfunarbúðum á hverjum degi. Ég er nú svolítið langt frá því ennþá enda bara rétt rúmlega 4 mánaða gamall. Ég er hins vegar farinn að vera ansi góður í að mjaka mér fram og tilbaka á maganum, geri svakalega flottar skriðhreyfingar með fótunum og kemst þannig út af leikteppinu og á parketið sem mér finnst mjög spennandi því ég held að ég geti kroppað í alla kvistina, en þeir sitja sem betur fer fastir segir mamma.
Mamma lofar því að setja inn myndir af mér sem fyrst og vídeó um leið og hún lærir það, en hún er svo mikill nörd að hún er ekki búin að læra það.
Á morgun ætla ég svo að fara hvetja pabba í 10 km hlaupi til styrktar Einstökum börnum og ég hlakka mikið til að sjá hann koma í mark. Sjáumst vonandi sem fyrst og munið að kvitta í gestabókina.

2 skilaboð on "Má ég skipta á honum?"

Ingvar Þór on 24 ágúst, 2009 14:52 sagði...

Endilega vídeó....mér finnst nefninlega ofsalega gaman að sjá vini mína hreyfast í tölvunni hennar mömmu

Daníel Gunnar Grétarsson on 25 ágúst, 2009 19:54 sagði...

Já há mér finnst Víó líka rosalega fyndin og skemmtilegt. Það er gott að mamma þín leyfi þér aðeins að sitja, það er svo miklu skemmtilegra að skoða dótið sitt þegar maður er sitjandi
bless bless þinn vinur

Skrifa ummæli

 

Jörundur Þór Hákonarson Copyright 2008 All Rights Reserved Baby Blog Designed by Ipiet | All Image Presented by Tadpole's Notez