07 ágúst 2009
Fyrsti alvöru hláturinn
Ég byrjaði í dag að hlægja fyrir alvöru. Ég hef oft áður skríkt smá en ekki hlegið neitt af viti. Í dag var svo amma á Fjósum að sýna mér tvær skálar, eina gula og aðra appelsínugula og mér fannst þær alveg svakalega fyndnar, svo í kvöld var pabbi að leika við mig "pabbi er týndur" leik með taubleijunni minni og mér fannst það alveg svakalega fyndið líka. Ég er semsagt formlega byrjaður að hlægja. Mamma reyndi líka að fá mig til að hlægja en ég vildi bara fá eitthvað að borða hjá henni, brosti til hennar og reyndi svo að borða á henni kinnina :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 skilaboð on "Fyrsti alvöru hláturinn"
Það er svo ofsalega gaman að hlæja AF pabba, en svo þegar þú verður eldri þá ferðu að hlæja miklu meira MEÐ mömmu ;)
Skrifa ummæli